Töðugjöld 2024 Arctic Challenge í Ýdölum, Þingeyjarsveit, dagana 27. september og 28. September.

Arctic Challenge í samvinnu við sveitastjórn Þingeyjarsveitar standa fyrir sælkeraveislu. Um er að ræða tvö kvöld og verða í boði um fimmtíu sæti hvort kvöld.

Sindri Freyr Ingvarsson matreiðslumaður, sigurvegari Arctic Chef 2024, sér um að matreiða dýrindiskrásir úr hráefni sem að magninu til kemur úr héraðinu.

Elmar Freyr Arnaldsson, framreiðslumaður, sem lennti í öðru sæti í Arctic Mixologist 2024, mun sjá um vínpörun ásamt því að bjóða upp á kokteilinn sem að landaði honum öðru sætinu í keppninni.

Húsið opnar kl. 18:00 og maturinn byrjar kl. 19:00.

Miðaverð er 8.990 kr fyrir matinn og 14.990 með vínpörun.

Miðasala fer fram á tix.is

Matseðill

Taðreyktur silungur frá Geiteyjarströnd

soðbrauð - hvönn - broddkúmen - sýrður rjómi

Kartöflur frá Vallakoti

skessujurt – Feykir ostur – sinnepsfræ

Bleikja frá Haukamýri

súrmjólk – piparrót – gúrka frá Hveravöllum – rúgbrauð frá Hverabrauði

Ærfilé frá Hriflu

ærhjörtu frá Hriflu – grænkál frá Vallakoti – hamsatólgur frá Stóruvöllum

Skyrmús frá Hriflu

sýrð krækiber – aðalbláber – karamella – kerfill

(ber tínd úr héraði)

Kokteilaseðill

Stóruvellir Spritz

rabbarbarasíder – eldblóm – stikkilber

Wake up call

Arctic Mixologic kokteill 2024

kryddjurtalegið vodka – aperol, sætur vermouth, espresso infused

Skútustaðar-Sveppur

sveppalegið viskí – rúgbrauðsbjórssýróp frá Mývatnsöl – kakó bitter

Ýdalir mojito

romm – myntulíkjör – mjaðjurtarsýróp – hundasúra – lime

Elmar Freyr Arnaldsson
Sindri Freyr Ingvason