Arctic Mixologist 2023

Arctic Mixologist er barþjóna og kokteilakeppni undir menningarviðburðinum Arctic Challenge sem haldin var í fyrsta skiptið í janúar 2022. Keppnin er til þess að búa til grundvöll fyrir samkeppni sem sameinar ástríðu og fagmennsku veitingageirans á Norðurlandi og þétta hann saman. Arctic Mixologist mun þannig sýna fram á hæfileika og getu einstaklinga í veitinageiranum fyrir norðan og einnig auka samheldni, vinsemd og virðingu veitingaaðila á Norðurlandi.

Engin skilyrði eru um faglærða einstaklinga í keppninni heldur fá vetingastaðir og barir tækifæri til að senda frá sér barþjóna og áhugasama sem vilja taka þátt. Þáttakendur blanda kokteilinn fyrir framan dómnend sem hefur möguleika á eiga í samskiptum við hvern þáttakanda fyrir sig til þess að fá hugmynd um hver hugsunin er bakvið hvern og einn kokteil.

Dæmt er eftir bragði, lykt, útliti, þema keppninnar hverju sinni, vinnubrögðum og hreinlæti

Úrslit Arctic Mixologist 2023

Önnur keppni Arctic Mixologist var haldin 2023 í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Þar keppti glæsilegur hópur um titilinn Arctic Mixologist 2023.

1.sæti

Andri Þór Guðmundsson

Aurora Restaurant

2.sæti

Eyþór Darri Baldvinsson

R5 bar og 6A kraftöl

3.sæti

Helgi Pétur Davíðsson

Strikið Restaurant

Í dómnefnd Arctic Mixologist sátu:

Jónína Björg Helgadóttir – Eigandi Majó
Heiða Fjölnisdóttir – Framreiðslumaður
Ivan Vujcic – Vínþjónn